föstudagur, september 29, 2006
fimmtudagur, september 21, 2006
Pæling:)

Fór í gær í tíma til Önnu Sigurðar, algjör snilld:) Hver er með næsta miðvikudag?
Er annars að fara í kvennósaumó núna namminammi. Humm smá mótsögn í þessum tveimur málsgreinum, önnur snýst um brennslu en hin ja segjum að hún snúist ekki um það. Það er samt brennsla í því að hlægja hehe;)
Góða helgi gott fólk:)
ps. tókum myndavélina með eins og sést hehe
mánudagur, september 18, 2006
Helgin
Það var ekkert smá gaman um helgina. Eftir að hafa kennt 1. bekk heilan dag brunuðum við niður í skóla og fórum á Laugarvatn. Það var ekkert smá gaman:) Það sem stóð upp úr var leikurinn Láttu bjórinn ganga (lesist með rödd þáttastjórnanda í amerískum leikjaþætti). Spilaðar voru allmargar umferðir og vann ég eina hehe;) Við fórum á ball á Lindinni þar sem stuðið var þvílíkt. Það var voða gott að koma heim og sofna eftir langan og skemmtilegan dag:)
Hér eru svo myndir frá kvöldinu þar á meðal eru myndir af nokkrum vinningshöfum kvöldsins;)
Daginn eftir heyrðist ekkert í mér. Ég missti röddina því við sungum svo svakalega mikið og hátt hehe;) Ég var ekki hætt að djamma, ónei því ég fór í innflutningspartý hjá bróður mínum og mágkonu á Eyrarbakka. Þetta var alveg frábært kvöld.
Í gær var svo lært og hvílt sig eftir æðislega helgi:)
miðvikudagur, september 13, 2006
Bjórkvöld
Það er ekki margt sem hefur komist að heldur en skólinn og verkefni tengd honum, gaman að því. En í kvöld ætla ég á bjórkvöld útskriftarnema þar sem við ætlum að hrista hópinn saman og ræða um útskriftarferðina í maí og fjáraflanir. Ég er komin í þrjár fjáröflunarnefndir, bolasölu, bingókvöld og karnival og verður það án efa skemmtileg leið til að safna peningum fyrir sólarferð;)
Svo má ekki gleyma hinni árlegu Laugarvatnsferð sem verður á föstudaginn. Þrjú bleikubeib og vinir þeirra ætla ekki að missa af þessari frábæru ferð, spurning í hvaða búning við verðum;)
Það verður nóg um að vera um helgina því ég er líka að fara í innflutningspartý hjá bróður mínum og kærustunni hans á Eyrarbakka á laugardaginn, mín verður bara út á landi alla helgina hehe...
Hver man ekki eftir þessari ferð:)
sunnudagur, september 10, 2006
Ég stækkaði í dag um nokkra sentimetra því ég keypti mér stígvél. Já Flatbotna Sía keypti sér skó með hælum og ætlar sér að nota þá hversdagslega! Tók Margréti nefnilega til fyrirmyndar og ákvað að reyna að pæja mig upp. Er komin nokkuð langt með það, keypti mér pæjupeysu í búðinni hennar Siggu frænku fyrir vestan, er farin að naglalakka mig, er með tiltölulegar nýja klippingu og strípur (er líka með einn depil í toppnum en ég borgaði ekki fyrir hann), á gullskó sem ég er ótrúlega ánægð með eins og sumir hafa heyrt nokkrum sinnum. Heyrðu já var næstum búin að gleyma flotta bolnum sem ég keypti í dag sem verður notaður á djamminu. Ætli þetta séu kannski merki um að ég er að fullorðnast, spurning... Talandi um það ég sá draumaíbúðina mína á netinu í gær og ég hef varla hætt að hugsa um hana. Á einhver nokkrar millur til að lána mér? Þetta er ótrúlega kósý, lítil risíbúð við Laugardalinn. Vá hvað mig langar að kaupa hana.
fimmtudagur, september 07, 2006
Hæ hæ
Sælt veri fólkið
Ég veit ég hef ekki verið eins dugleg og ég ætlaði en ég lofa að bæta úr því:) Núna er skólinn byrjaður af alvöru með verkefnum og öllu tilheyrandi jibbý. Svo er ég orðin forfallakennari jebb mín var að kenna 6 ára í dag og það gekk bara mjög vel, gullskórnir mínir vöktu mikla lukku:) Þau voru voða góð en þó eru nokkrir fjörkálfar sem þurftu aðeins að sýna sig hehe:)
Er síðan að fara að vinna á foreldrakvöldi í Draumalandi í kvöld og svo fer ég að hitta stelpurnar á kjörsviðinu mínu og við ætlum að borða og drekka og kjafta að sjálfsögðu, hlakka til:)
þangað til næst,
forfallakennarinn:)



