Vinna
Jæja stúlkur mínar þá kemur blogg frá mér:)
Ég er búin að vera að vinna svolítið auka þessa vikuna og svo byrja ég á fullu í næstu viku þegar ég fer á fræðslur og fleira skemmtó. Námskeiðin fyrir krakkana byrja svo daginn fyrir afmælið mitt og það vita allir hvenær það er;) Svo verður mín yfirmaður í nokkrar vikur í júní og verð ég þá voða fín með mig í dragt og alles, hehe nei djók bara gamla ég plús meira álag hehe. Í júlí verður frekar tjillað í vinnunni þar sem ég og einn strákur verðum með frístundaklúbb fyrir 10-12 ára krakka og það er allt annað mál en að vera með 6 ára krúsídúllurnar sem geta verið ansi fjörug á tímum;)
Á morgun verð ég í undirkjörstjórn í Ölduselsskóla allan daginn og kvöldið þannig að ég verð hressust annað kvöld en er samt að pæla að gera kannski eitthvað, ég meina þetta er nú einu sinni kosningakvöld:)
Afmælispartýið mitt verður síðan haldið að öllum líkindum 9. júní en ég læt ykkur vita betur af því líklega bara í næstu viku.
Óska síðan Ásdísi Svövu aftur til hamingju með 2. sætið í ungfrú Ísland:)
Þangað til næst, Sían:)

