Hér eru myndir frá síðustu dögum.
Fórum í grillveislu til mömmu vinar Amöndu sem býr í rosasætu húsi í úthverfi Aarhus og er 200 metrum frá ströndinni. Maturinn var æðislegur og þetta var yndislegt kvöld þar sem spjallað var um allt milli himins og jarðar.
Flotta húsið
Við matarborðið
Við Amanda við ströndinaSvo er Jazzfest hér í Aarhus og verður í viku og við skelltum okkur á tvenna tónleika í gær og það var mjög skemmtilegt. Fyrri hljómsveitin leit út eins og Hjálmarnir en hljómaði svolítið eins og Paparnir og einhver þungarokkshljómsveit saman, ég veit furðuleg blanda. Tónleikarnir um kvöldið voru frábærir og spilaði hljómsveitin Prima Junior hressa tónlist frá 20's og 30's og voru með ótrúlega flott show.
Hljómsveitin Afenginn, söngvarinn er með svaka dreada og var á táslunum.
Þessir voru allir í búningum, teinóttum jakkafötum í mismunandi litum.Vorum síðan á ströndinni í gær og í dag og það var sko ljúft. Grilluðum svo áðan í garðinum, namm namm.
Er svo að fara til Odense á föstudaginn að hitta Mörtu og ég hlakka ekkert smá til:)
Heyrðu svo var ég víst klukkuð af henni Lindu og það er nú eins gott að standa sig í því;) Þar á maður að segja 8 merkilegar staðreyndir um sig og hér kemur það:
1. Ég er líkt og Linda afar skipulögð (samt ekki alveg eins skipulögð og hún, er líklega mjög óskipulögð borin saman við hana hehe) ég t.d. skrifaði niður á blað þessar 8 staðreyndir um mig áður en ég setti þær hér inn. Það er kannski ekki skrítið að ég sé kennari, enda er bráðnauðsynlegt að vera vel skipulagður í því starfi.
2. Ég er svolítill frestari og geri mikið af því að fresta hlutum sem ég nenni ekki að gera þó svo að það taki mjög lítinn tíma að framkvæma þá og að maður verði ánægður þegar þeim er lokið. Er alltaf að breyta reminder-unum á símanum mínum.
3. Barnlausa manneskjan ég get alveg misst mig í barnafatabúðum, eftir að frændur mínir komu í heiminn og líka eftir að Ágústa Rut fæddist. Þá fæ ég slæmt kast af valkvíða og snýst í milljón hringi áður en ég kaupi eitthvað því allt er svo flott. Hvernig ætli ég verði þegar ég eignast börn sjálf, hehe.
4. Er svolítil Já manneskja og á erfitt með að segja nei þó svo að mig langi ekkert meira en að gera einmitt það. Ég er þó að lagast í þessu sem betur fer.
5. Ég er kennari (vá hvað það er gaman að segja/skrifa þetta).
6. Verð helst að vera að gera margt í einu, enda er ég í tvíburamerkinu. Þarf t.d. helst að skoða nokkrar heimasíður í einu og ef ég er að horfa á semi spennandi þátt í sjónvarpinu verð ég að hafa tölvu eða tímarit hjá mér. Kannski er ég bara með snert af athyglisbresti hehe.
7. Er ekki hávaxin (ok ég er lágvaxin) en á varla neina háhælaða skó og tek því þægindin fram yfir útsýnið.
8. Elska tónlist og veit ekki hvernig heimurinn væri án hennar.

9 Ummæli:
Hæ hæ Sigríður Erna
Langt síðan ég hef kíkt á síðuna þína en það er greinilega margt skemmtilegt að gerast hjá þér Danaveldi - njóttu þess.
kveðja
Ósk
Hæ skvís, staðreyndirnar eru staðreyndir, vissi reyndar ekki þetta með barnafötin hahah. Hafðu það gott í Danmörku
kveðja, Anna Pála
Takk stelpur:)
Já þetta eru sko staðreyndir hehe;)
mjá og knús til tín!
Margrét
Hæhæ..
Greinilega æði hjá þér í Danmörku. Gaman að lesa staðreyndirnar um þig. Þó að ég sé yfirleitt talin frekar skipulögð manneskja þá ert þú sú allra skipulagðasta sem ég þekki ;-)
Kv. Eyrún
hæ skvís á ekkert að blogga neitt meira!!! ertu svona bissí að versla og drekka bjór he he he
knús Helga
Hæhæ , flott síða hjá þér :D
Ætlaru ekkert að blogggggga ?
Hehe , en þú verður að fara að kíkja oftar til Ísafjarðar ..
En við þá bara sjáumst :Þ
Bkv.ElísabetGígja LitlaFrænka
zzzzz2018.5.30
carolina jerseys
golden goose shoes
dsquared2
michael kors outlet clearance
nike air max 95 ultra
valentino
maillot football pas cher
fitflops sale
dsquared2
boston celtics jersey
yeezy 500
golden goose outlet
steph curry shoes
supreme hoodie
calvin klein outlet
lebron 16
paul george
longchamp
lebron 18
adidas yeezy
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim