Sían

laugardagur, ágúst 04, 2007

Rolling Stones á morgun!!!




fimmtudagur, júlí 26, 2007

Það sem á daga mína hefur drifið síðan síðast:

- Ég fór á fótboltaleik, Aarhus á móti Horsens þar sem Horsensmenn unnu.

Soldið mikið fólk

- Fór til Odense á föstudagsmorguninn og var fram á laugardagskvöld. Þar skoðuðum við Marta og mamma hennar H.C. Andersen safnið og svo fórum við Marta að versla en ekki hvað hehe;) Um kvöldið fórum við út að borða og fengum okkur í aðra tánna:) Daginn eftir fórum við Marta í stóra kringlu þar sem Marta verslaði af sér rassgatið en ég var aðeins hógværari enda búin að vera fastur gestur á Strikinu í næstum því 3 vikur:) Hlupum svo nánast í Magasin því við héldum að það væri að fara að loka en svo var ekki og versluðum við þar ógeðslega flott pennaveski í Friis og Company. Þetta var frábær ferð og held ég bara það skemmtilegasta sem ég hef gert hérna í Danaveldi fram að þessu:) Ég var ekki með myndavélina á föstudeginum og á eftir að fá myndir hjá Mörtu en ég tók þessar á laugardeginum.

H.C. Andersen

Skreyting í glugganum á H.C. Andersen safninu.

Svo maður viti hvert maður eigi að fara.

- Við Amanda erum búnar að vera frekar duglegar að fara á kaffihús.

- Hitti Hugborgu á þriðjudaginn og við kíktum í búðir (hef gert voða lítið af því hehe) og á kaffihús.

- Svo kemur familían mín annað kvöld og verður frábært að hitta liðið:) Verðum með bílaleigubíl í 3 daga og ætlum að fara eitthvað skemmtó. Svo förum við saman yfir til Köben áður en kemur að heimferð og ætlum að fara á Rolling Stones svo eitthvað sé nefnt og er spennan að magnast yfir því:)

mánudagur, júlí 16, 2007

Hér eru myndir frá síðustu dögum.

Fórum í grillveislu til mömmu vinar Amöndu sem býr í rosasætu húsi í úthverfi Aarhus og er 200 metrum frá ströndinni. Maturinn var æðislegur og þetta var yndislegt kvöld þar sem spjallað var um allt milli himins og jarðar.

Flotta húsið

Við matarborðið

Við Amanda við ströndina

Svo er Jazzfest hér í Aarhus og verður í viku og við skelltum okkur á tvenna tónleika í gær og það var mjög skemmtilegt. Fyrri hljómsveitin leit út eins og Hjálmarnir en hljómaði svolítið eins og Paparnir og einhver þungarokkshljómsveit saman, ég veit furðuleg blanda. Tónleikarnir um kvöldið voru frábærir og spilaði hljómsveitin Prima Junior hressa tónlist frá 20's og 30's og voru með ótrúlega flott show.

Hljómsveitin Afenginn, söngvarinn er með svaka dreada og var á táslunum.

Þessir voru allir í búningum, teinóttum jakkafötum í mismunandi litum.

Vorum síðan á ströndinni í gær og í dag og það var sko ljúft. Grilluðum svo áðan í garðinum, namm namm.

Er svo að fara til Odense á föstudaginn að hitta Mörtu og ég hlakka ekkert smá til:)

Heyrðu svo var ég víst klukkuð af henni Lindu og það er nú eins gott að standa sig í því;) Þar á maður að segja 8 merkilegar staðreyndir um sig og hér kemur það:

1. Ég er líkt og Linda afar skipulögð (samt ekki alveg eins skipulögð og hún, er líklega mjög óskipulögð borin saman við hana hehe) ég t.d. skrifaði niður á blað þessar 8 staðreyndir um mig áður en ég setti þær hér inn. Það er kannski ekki skrítið að ég sé kennari, enda er bráðnauðsynlegt að vera vel skipulagður í því starfi.

2. Ég er svolítill frestari og geri mikið af því að fresta hlutum sem ég nenni ekki að gera þó svo að það taki mjög lítinn tíma að framkvæma þá og að maður verði ánægður þegar þeim er lokið. Er alltaf að breyta reminder-unum á símanum mínum.

3. Barnlausa manneskjan ég get alveg misst mig í barnafatabúðum, eftir að frændur mínir komu í heiminn og líka eftir að Ágústa Rut fæddist. Þá fæ ég slæmt kast af valkvíða og snýst í milljón hringi áður en ég kaupi eitthvað því allt er svo flott. Hvernig ætli ég verði þegar ég eignast börn sjálf, hehe.

4. Er svolítil Já manneskja og á erfitt með að segja nei þó svo að mig langi ekkert meira en að gera einmitt það. Ég er þó að lagast í þessu sem betur fer.

5. Ég er kennari (vá hvað það er gaman að segja/skrifa þetta).

6. Verð helst að vera að gera margt í einu, enda er ég í tvíburamerkinu. Þarf t.d. helst að skoða nokkrar heimasíður í einu og ef ég er að horfa á semi spennandi þátt í sjónvarpinu verð ég að hafa tölvu eða tímarit hjá mér. Kannski er ég bara með snert af athyglisbresti hehe.

7. Er ekki hávaxin (ok ég er lágvaxin) en á varla neina háhælaða skó og tek því þægindin fram yfir útsýnið.

8. Elska tónlist og veit ekki hvernig heimurinn væri án hennar.

miðvikudagur, júlí 11, 2007

Hver sagði að það væri séríslenskt hvað veðrið væri breytilegt, á nokkrum dögum hef ég séð allt nema snjó held ég bara. Í gær var sól og hiti svo kom úrhelli og svo sýndi sólin sig aftur og þannig hélt það áfram.

Það var æðislegt að fá Margréti í heimsókn um helgina:) Við stelpurnar kíktum á nokkra staði hér á laugardagskvöldið og fengum okkur kokteila. Daginn eftir fórum við í Magasin (eina búðin sem var opin) og niður á höfn þar sem hátíð og mér leið eins og það væri kominn 17. júní. Krakkar með kandíflos, sölutjöld, fullt af fólki, hljómsveit og tívolí. Það var mjög skemmtilegt að upplifa danska hátíðarstemmningu.

Um helgina heyrði ég mjög skemmtilega fullyrðingu um mig sem ég hef held ég ekki heyrt síðan ég var lítil en hún hljómar á þessa leið: "Vá Sía hvað þú ert brún, þú ert brúnni en ég." Þetta var Margrét sem hefur ekki séð sólina síðan í vor og ég var náttúrulega í sumarveðrinu heima:) Þetta gladdi mig mjög mikið hehe.

Á mánudaginn kom svo loksins sumarveður og við Amanda borðuðum kjúklingasalat út í garði. Þetta var stutt heimsókn hjá Fröken Sumri og hún hélt eitthvert langt í burtu í gær og leyfði Herra Rigningu að koma í staðinn, skil ekki hvers vegna.

Stór dagur á morgun, elsku besta mamma mín á afmæli og líka Amanda og Kata:)

Við Amanda á laugardagskvöldið

Við Margrét, gott ef ég hef ekki hækkað eitthvað síðan við hittumst síðast:)

Nei greinilega ekki, það er samt ekki svona mikill hæðarmunur, hún stóð á tá:)


Paradis is, ótrúlega góður ís:)

Mega hress hljómsveit sem tók fullt af gömlum góðum smellum og kom fólki í gírinn

Ótrúlega flott skip

Kvöldmatur í garðinum


Amanda með Kötulegan svip:)

laugardagur, júlí 07, 2007

Fór í Ikea í gær með Amöndu og keypti mér fótakrem, já þið lásuð rétt það er hægt að kaupa fótakrem, sturtusápu og body lotion í Ikea í Aarhus eins undarlegt og það hljómar í húsgagna- og húsbúnaðarverslun hehe.


Hef svo bara setið við gluggann í dag og beðið eftir sólinni, nei djók kíkti í bæinn og verslaði mér einn bol og svo keypti kennarinn sér ógó sæta marimekko stílabók til að skrifa í kennsluhugmyndir. Er enn ekki komin í verslunargírinn sem ég fer í þegar ég er komin út fyrir íslenska landhelgi og ég hugsa að ástæðan sé sú að ég hef svo góðan tíma, ég verð komin á 90 km hraða á strikinu síðustu dagana.


Margrét er núna í lestinni á leiðinni til mín, það verður svo mikil snilld að hitta hana. Er með hvítt og bjór í kælinum sem bíður þess að vera drukkið í kvöld:)


Lýk þessu í dag með mynd af húsinu "mínu"

Herbergið sem ég er í er á þriðju hæðinni

fimmtudagur, júlí 05, 2007

Bréf nr. 1 frá Danmörku:)
Kom hingað á þriðjudagsmorgun og mér til mikillar undrunar og ánægju skein sólin hér í Árósum (þó ekki eins mikið og heima). Ferðin gekk glimrandi vel en ég var ansi þreytt þennan fyrsta dag þar sem ég svaf ekkert í vélinni (dottaði aðeins) og heldur ekkert í lestinni (þorði ekki að líta af farangrinum hehe) og vakti þannig í rúman sólarhring. Það var æðislegt að hitta Amöndu eftir langan tíma og við erum búnar að bralla ýmislegt hér síðan ég kom t.d. kíktum við í búðir í bænum, erum búnar að elda saman og fara út að borða og svo erum við einstaklega öflugar að hjóla:) Herbergið sem ég mun búa í á meðan á dvölinni hér stendur er mega kósý og það er rosa gott að vera hérna. Svo á laugardaginn kemur Margrét mín til mín og þá verður sko gaman:)
Ég var að spá í að vera dugleg að setja inn myndir og ef til vill nokkur orð með hér næstu vikurnar svo þið getið lesið og líka er þetta svona dálítil dagbók fyrir mig:) Verið bara dugleg að kommenta:)


Hey ég var þarna fyrir 9 árum!


Amanda og kjúklingarétturinn sem við elduðum

Ég og maturinn sem var eldaður í gærkvöldi





miðvikudagur, maí 02, 2007

Hamingjuóskir til allra sem eru búnir að skila lokaverkefnum:)

Er upp í skóla að læra með Örnu Ósk. Var að átta mig á því að þegar ég er búin með þetta verkefni sem ég er að gera núna þá þarf ég ekki að gera neitt verkefni fyrr en ég fer í mastersnám, jibbý jey:)

Annars er kokteilboð með kennurunum á föstudaginn í tilefni af lokaverkefnaskilum og ég hlakka ógó mikið til:) Við stelpurnar erum með smá planað og mun ég segja nánar frá því eftir föstudaginn hehe:)