Sían

fimmtudagur, júlí 05, 2007

Bréf nr. 1 frá Danmörku:)
Kom hingað á þriðjudagsmorgun og mér til mikillar undrunar og ánægju skein sólin hér í Árósum (þó ekki eins mikið og heima). Ferðin gekk glimrandi vel en ég var ansi þreytt þennan fyrsta dag þar sem ég svaf ekkert í vélinni (dottaði aðeins) og heldur ekkert í lestinni (þorði ekki að líta af farangrinum hehe) og vakti þannig í rúman sólarhring. Það var æðislegt að hitta Amöndu eftir langan tíma og við erum búnar að bralla ýmislegt hér síðan ég kom t.d. kíktum við í búðir í bænum, erum búnar að elda saman og fara út að borða og svo erum við einstaklega öflugar að hjóla:) Herbergið sem ég mun búa í á meðan á dvölinni hér stendur er mega kósý og það er rosa gott að vera hérna. Svo á laugardaginn kemur Margrét mín til mín og þá verður sko gaman:)
Ég var að spá í að vera dugleg að setja inn myndir og ef til vill nokkur orð með hér næstu vikurnar svo þið getið lesið og líka er þetta svona dálítil dagbók fyrir mig:) Verið bara dugleg að kommenta:)


Hey ég var þarna fyrir 9 árum!


Amanda og kjúklingarétturinn sem við elduðum

Ég og maturinn sem var eldaður í gærkvöldi





3 Ummæli:

Þann 4:28 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

hæ Sía mín mig hlakkar rosa mikið til að koma og hitta þig og fara í hm og legoland. Láttu myndirnar endilega koma:) Þín systir Lallý

 
Þann 12:10 e.h. , Blogger Linda sagði...

Hæhæ elsku Sía mín og frábært að allt gengur vel. Vertu nú úber súper dugleg að uppfæra síðuna;) Knús frá mér og Ágústu veltistelpu!

 
Þann 3:29 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

gfeu094kd2zs
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim