Sían

laugardagur, mars 10, 2007

Fór í gær á skemmtilegustu árshátíð sem ég hef farið á:) Kvöldið byrjaði klukkan fimm um daginn þegar við Arna mættum fashionably late í fyrirpartýið hjá Bjarney. Þar borðuðum við snarl, sögðum hver leynivinurinn okkar væri og rifjuðum upp síðustu þrjú ár (og skrifuðum í bókina hennar Láru). Rútan sem við geishurnar unnum sótti okkur og vorum við komnar í Gullhamra um hálf átta. Við tókum lagið fyrir utan og héldum síðan inn til að finna bleiku beiba borðið sem var að sjálfsögðu besta borðið, beint fyrir framan sviðið. Maturinn var frábær, skemmtiatriðin líka og Buffarar stóðu sig einstaklega vel á ballinu. Satt best að segja hefði kvöldið varla getað verið betra:)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim