Þá er fyrsta vikan í skólanum búin, held ég hafi aldrei verið að læra jafn mikið í fyrstu vikunni og núna. Að vísu hefur þetta mest verið undirbúningur fyrir fullt af verkefnum t.d. heimildavinna og svoleiðis. Ég er í einu námskeiði á yngri barna kjörsviðinum og svo tveimur á íslensku og auðvitað er ég líka að gera lokaverkefni. Mér líst bara mjög vel á þetta allt saman, þetta ætla að verða nokkuð spennandi námskeið:)
Fór einmitt með íslensku kjörsviðinu á leikritið Bakkynjur í Þjóðleikhúsinu í gær. Fyrst var mjög fínn fyrirlestur með Hlín Agnarsdóttur um leikritið. Leikritið var bara nokkuð gott en aðeins of langt, um tveir og hálfur tími. En með því að mæta kláruðum við 10% af námskeiðinu sem er ótrúlega gott eftir bara eina viku í skólanum:)
Það fór fram kosning í gær um hvert við ættum að fara í útskriftarferð og eins og staðan er núna þá verður farið til Rhodos, endanleg ákvörðun verður tekin eftir helgi.
Helgin verður bara róleg og góð. Fer í saumó annað kvöld og svo ætla ég að læra og slappa af. Vona að þið eigið góða helgi:)
Sía

3 Ummæli:
Góða helgi skvís :)
Kem alltaf og kíki hér á þig við og við :)
Kv Pálína
Skilaðu kveðju í saumóinn frá mér ;) Kíktu líka á bloggið mitt þar er vindasamt um að lítast ;)
Þín Margrét
Skila því:)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim