Sían

sunnudagur, ágúst 27, 2006

Bloggsnillingur

Ég er algjör snillingur þegar viðkemur bloggi hehe;) Eins og glöggir lesendur tóku eftir fór síðan í fokk um helgina. Allt draslið sem sér um uppsetningu og slíkt datt út þegar ég reyndi að bæta blogginu hjá Madridarförunum inn. En ég náði að redda þessu að lokum vúhúúú með þvílíkum brögðum. Þannig að það er ljóst að ég er bloggsnillingur, komið bara til mín ef þið þurfið aðstoð hehe nei djók:)

Ef einhver þarna úti er meiri snillingur en ég og kann að gera headerinn flottan og bæta við myndum þá má sá hinn sami hafa samband:)

Hef þetta í styttri montkantinum í dag, heyrumst seinna
Sían

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

I'm baaack:)

Þá er ég mætt á bloggið aftur eftir sumarfrí vegna tuga áskorana hehe:)

Nú er skólinn byrjaður aftur og ég er komin á 3. ár jibbý. Ég er að bisast við að velja mér skóla fyrir vettvangsnámið en það gengur ekki alveg nógu hratt, ég þekki ekkert til kennaranna í 6 ára bekk í skólunum sem ég hef mestan áhuga á, en þetta hlýtur að reddast.

Guðjón minn byrjaði í 1. bekk í dag og þegar ég spurði hann hvað hann hefði gert þá sagði "bara allt" :)

Það sem er skrítnast við að byrja í skólanum er að það vantar næstum helminginn af bleiku beibunum. Arna og Lára eru farnar til Madrid og Ósk og Eyrún fara eftir 2 vikur, Edda er á Kanaríeyjum og Hugborg er á Ítalíu. Ekki nóg með það þá fór Margrét til Berlín og verður þar í vetur. Eins gott að við hinar sem erum eftir á landinu verðum duglegar að djamma og gera eitthvað skemmtilegt saman.

Læt fylgja nokkrar hressar myndir frá Klofa 2006:)

Fótboltaliðin knáu