Sían

mánudagur, október 16, 2006


Helgin var mjög svo skemmtileg. Á föstudaginn fórum við á Oktoberfest niður í skóla og í tjaldinu fyrir utan HÍ. Lára kom og kíkti á okkur og það var ekkert smá gaman að hitta hana, er búin að sakna hennar og hinna stelpnanna mikið. Á laugardaginn var afmælispartý hjá Mörtu og var stuð þar:) Gærdagurinn fór í leti og IKEA ferð:)

Í dag hófst svo vettvangsnámið og verð ég að kenna í Háteigsskóla næstu fimm vikurnar. Þetta legst bara ágætlega í mig, krakkarnir eru voða krútt og það var tekið vel á móti okkur. Í þessari viku verður áheyrn þar sem við erum að kynnast krökkunum og skólanum öllum. Það er svo bara að leggjast í hugmyndavinnu og plana geggjaðar fjórar vikur:)

föstudagur, október 06, 2006


Linda vinkona á afmæli í dag, til hamingju með það:) Er því á leið í afmælisveislu núna á eftir.
Það er svo rosaplan um helgina. Strákarnir verða hjá okkur allan morgundaginn og svo verður mega bleikubeibapartý um kvöldið hjá Bjarney:) Í partýinu mun ég líklega leika gæs undir leikstjórn Birnu sem er að fara að gera stuttmynd haha, það verður skrautlegt ef það verður. Svo er spurning um að læra eitthvað smá hehe;)
úpps eins gott að fara í sturtu núna, afmælið byrjar eftir 50 mín.
Sían

þriðjudagur, október 03, 2006

Þegar maður loksins fær smá pásu í skólanum, þá fær maður samviskubit yfir að vera ekki að læra. Djöfull getur maður verið klikkaður, kann ekki lengur að slappa af og njóta þess hehe;)