Sían

laugardagur, júlí 07, 2007

Fór í Ikea í gær með Amöndu og keypti mér fótakrem, já þið lásuð rétt það er hægt að kaupa fótakrem, sturtusápu og body lotion í Ikea í Aarhus eins undarlegt og það hljómar í húsgagna- og húsbúnaðarverslun hehe.


Hef svo bara setið við gluggann í dag og beðið eftir sólinni, nei djók kíkti í bæinn og verslaði mér einn bol og svo keypti kennarinn sér ógó sæta marimekko stílabók til að skrifa í kennsluhugmyndir. Er enn ekki komin í verslunargírinn sem ég fer í þegar ég er komin út fyrir íslenska landhelgi og ég hugsa að ástæðan sé sú að ég hef svo góðan tíma, ég verð komin á 90 km hraða á strikinu síðustu dagana.


Margrét er núna í lestinni á leiðinni til mín, það verður svo mikil snilld að hitta hana. Er með hvítt og bjór í kælinum sem bíður þess að vera drukkið í kvöld:)


Lýk þessu í dag með mynd af húsinu "mínu"

Herbergið sem ég er í er á þriðju hæðinni

7 Ummæli:

Þann 9:51 f.h. , Blogger Linda sagði...

Hafið það nú rosa gott og hyggligt þið Margrét;) Bið alveg kærlega að heilsa H&M og segðu henni að ég komi fílefld til baka í september...og já ég bið auðvitað að heilsa Möggu líka!

 
Þann 9:30 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ hæ litla syss
þarf ég að koma og hjálpa þér í verslunargírinn he he he.
Gaman að getað fylgst með þér
knús og kossar Helga

 
Þann 2:50 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Þetta er allt að koma, væri samt ekki leiðinlegt að fá þið sem verslunarfélaga:) Keypti mér í dag ótrúlega flotta gullskó (af því hinir eru orðnir svo lélegir), bol í ræktina, dvd mynd og hjálm, það má því segja að ég sé komin í annan gír hehe;)

 
Þann 5:30 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ikea klikkar ekki! :) gaman að heyra í þér í gær skvísa

 
Þann 7:45 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ Sía
okkur langar að sjá fleiri myndir!!
Og viltu kaupa dót handa okkur
við söknum þín þínir frændur
Guðjón og Guðmundur

 
Þann 8:51 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hanna Guðný: Nei Ikea stendur sko fyrir sínu:) Það var líka ótrúlega gaman að heyra í þér:)

Guðjón og Guðmundur: Nýtt blogg og myndir á morgun. Það er dótabúð rétt hjá þar sem ég er og ég á eftir að fara í hana og kaupa eitthvað rosalega flott dót handa uppáhalds strákunum mínum, sakna ykkar líka:)

 
Þann 3:30 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

gfeu094kd2zs
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim