Lestrarerfiðleikar og ritun
Hæ
Long time no see:)
Ég er búin að vera svo bissý að læra upp á síðkastið enda prófin alveg að byrja. Ég fer í tvö próf 4. og 8. maí og svo er skil á möppum í Grafík, málun og teiknun 10. maí þannig að ég er búin snemma þetta árið;) 11. maí er síðan sýning í listgreinahúsinu í skólanum og verður undirrituð með eitt stykki málverk og eitthvað annað með þannig að allir að kíkja á meistaraverkin hehe.
Ég er búin að gegnsósa hausinn af lestrarerfiðleikum og ritun í dag, spurning hvað helst inni, en í tilefni að því að ég er í þessum töluðu orðum að klára viðfangsefnið ritun ákvað ég að henda inn nokkrum línum á bloggið því það er svo gott fyrir alla að skrifa því það þjálfar blablabla æj þið skiljið hvernig það er að vera í prófalestri maður er ansi steiktur haha;)
Hitti svo Margréti og Lindu áðan í Stórholtinu, það er ekkert smá nauðsynlegt að kíkja aðeins upp úr bókunum og hitta vini sína, takk fyrir það stelpur og til hamingju með að vera búin að skila og vera á leiðinni að skila lokaverkefnum:)
Bæjó fólk,
Sían:)







