Sían

miðvikudagur, apríl 05, 2006

Hver er ég?

Halló fólk

Á maður ekki að byrja á því að kynna sig? Ég heiti Sigríður Erna og er 23 ára Reykjavíkurmær. Ég er í Kennaraháskóla Íslands á 2. ári á grunnskólabraut. Nenni ekki að segja meira, ég meina þekkiði mig ekki annars? :)

Það er allt á fullu núna í skólanum og ætti ég að vera að læra í augnablikinu en það er nú bara svoleiðis að þá er alltaf hægt að finna sér eitthvað annað að gera. Það er bara rúmur mánuður eftir af skólanum úfff á eftir að gera svo mikið þangað til, en verður maður ekki að nota vel þekktan íslenskan frasa og segja: Þetta reddast;)

Núna ætla ég að renna yfir eina stórskemmtilega grein áður en stelpurnar ná í mig til að fara og fá okkur eitthvað gott í hádegismat.

Au revoir, Sían:)

1 Ummæli:

Þann 12:39 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

ógisslega töfftöfftöff síða hjá þér sæta mín ;)

Arna í heavy GELGJUSTUÐI!!! ;)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim