laugardagur, mars 17, 2007
miðvikudagur, mars 14, 2007
laugardagur, mars 10, 2007
Fór í gær á skemmtilegustu árshátíð sem ég hef farið á:) Kvöldið byrjaði klukkan fimm um daginn þegar við Arna mættum fashionably late í fyrirpartýið hjá Bjarney. Þar borðuðum við snarl, sögðum hver leynivinurinn okkar væri og rifjuðum upp síðustu þrjú ár (og skrifuðum í bókina hennar Láru). Rútan sem við geishurnar unnum sótti okkur og vorum við komnar í Gullhamra um hálf átta. Við tókum lagið fyrir utan og héldum síðan inn til að finna bleiku beiba borðið sem var að sjálfsögðu besta borðið, beint fyrir framan sviðið. Maturinn var frábær, skemmtiatriðin líka og Buffarar stóðu sig einstaklega vel á ballinu. Satt best að segja hefði kvöldið varla getað verið betra:)
miðvikudagur, mars 07, 2007
mánudagur, mars 05, 2007
Í dag hefjast tvær vikur, árshátíðarvikan og leynivinavikan. Er búin að vera að pæla í því síðustu daga hvað maður eigi að gera fyrir leynivininn og ég er með slatta af hugmyndum sem ég náttúrulega má ekki segja hér hehe:) Gaman að þessu.
föstudagur, mars 02, 2007
Við (ég, Arna, Lára og Eyrún) komum, sáum og sigruðum búningakeppnina á keilukvöldinu í gærkvöldi. Í verðlaun var rútuferð úr partýinu á árshátíðina næstu helgi og út að borða á Quizno's:) Staðsetning partýsins 9. mars var snarlega færð úr Grafarvoginum vestur í bæ til að njóta vinningsins til fulls hehe;) Bjarney, Þórunn, Ósk og Erna urðu í 3.-4. sæti þannig að bleikubeibin tóku 2 af 4 vinningssætum sem er algjör mega snilld. Hér eru nokkrar myndir frá kvöldinu.
Við geishurnar, erum við ekki flottar:)
FBI agents (Elísa undercover)
Los Clikkos, vá hvað þær eru eins og persónur úr teiknimynd:)
Arna stóð sig með prýðum í keilunni:)
Þessir alríkislögreglumenn hugsuðu svo stíft að það fór að rjúka úr þeim.
Ein japönsk og önnur einhvers staðar frá:)
Ein góð pósa í lokin.












