Sían

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Nú er ég komin í mini jólafrí til 8. desember þegar ég fæ síðasta verkefnið á þessari önn:) Við vorum að skila safnmöppunni og vá hvað það er gott að hún er frá, svo sátum við nokkrar og gerðum næst síðasta verkefnið í skrift í hádeginu og síðasta verkefnið er bara hugleiðing um námskeiðið, að auki (eitt af uppáhaldsorðalaginu í safnmöppunni hehe) kláruðum við síðasta verkefnið í áföllum í nemendahópnum.

Ég var beðin um myndablogg og hér koma nokkrar myndir:)





Hér erum við Bjarney í bekkjarpartýi hjá henni í október














Birna og Bjarney í sing star














Edda við sömu iðju:)

miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Þú veist að það er árið 2006 ef.....

1. Þú ferð í partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er afþví þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýtabara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega leist tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þína, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu áframfæri einhverstaðar.
EF þú féllst fyrir þessu ... Aha ekkert svona! þú féllst fyrir þessu

fimmtudagur, nóvember 02, 2006

Ég er komin í vetrarfrí, jibbý:)

Ég er búin að vera að kenna síðustu 2 vikur og hefur gengið rosalega vel hingað til, krakkarnir eru svo miklar dúllur og þau elska að vera í skólanum og byrja að læra um leið og þau koma á morgnanna, gæti maður beðið um betri bekk, held ekki:) Við erum líka búnar að fá svo mikið af hugmyndum frá viðtökukennurunum okkar að maður þarf að fjárfesta í möppu hið snarasta og setja þær í hana.

Síðustu helgar hafa verið mjög skemmtilegar. Fyrsta vetrardag fór ég í fjölskyldupartý þar sem stórfjölskyldan hittist og djammaði saman. Það var svo gaman:) Síðastu helgi kíktum við nokkrar úr bekknum á alþjóðakvöld í skólanum og á laugardeginum var árshátíð Las chicas sem var alveg frábær. Svo má ekki gleyma kósýkvöldi hjá Sigríði Bjarney þar sem við borðuðum góðar kökur og rétti og kjöftuðum heilmikið;)

Held að ég sé búin að covera "allt" sem ég hef verið að gera frá síðustu færslu, þannig að núna ætla ég að halda áfram að vera í vetrarfríi:)