Eftir hringavitleysu er loksins búið að panta, ég er á leið til MARMARIS eftir nákvæmlega 4 mánuði eða þann 25. maí. Vááá hvað ég hlakka til:D Nú get ég farið að hugsa um Tyrkland, sólskin, markaði og allt það sem er í boði. Ég verð í tvær vikur þannig að ég mun fagna 25 ára afmælinu mínu í góðra vina hópi og þá verður sko skandalast hehe:) Verð á þessu hóteli fyrstu vikuna sem er ógó flott.
Annars styttist í fyrstu utanlandsferðina á árinu, aðeins 11 dagar í Berlín:)
Frumflutti síðan lag um Freyju í Þjóðsögum, goðsögum og ævintýrum, vildi að ég gæti sett það hér á síðuna og leyft öllum að njóta.
Á morgun er bingó og þá er markmiðið að vinna alla flottustu vinningana og detta svo í það hehe;) Er sko í bingónefnd og þetta verður það flottasta ever.


