Það sem á daga mína hefur drifið síðan síðast:
- Ég fór á fótboltaleik, Aarhus á móti Horsens þar sem Horsensmenn unnu.
Soldið mikið fólk- Fór til Odense á föstudagsmorguninn og var fram á laugardagskvöld. Þar skoðuðum við Marta og mamma hennar H.C. Andersen safnið og svo fórum við Marta að versla en ekki hvað hehe;) Um kvöldið fórum við út að borða og fengum okkur í aðra tánna:) Daginn eftir fórum við Marta í stóra kringlu þar sem Marta verslaði af sér rassgatið en ég var aðeins hógværari enda búin að vera fastur gestur á Strikinu í næstum því 3 vikur:) Hlupum svo nánast í Magasin því við héldum að það væri að fara að loka en svo var ekki og versluðum við þar ógeðslega flott pennaveski í Friis og Company. Þetta var frábær ferð og held ég bara það skemmtilegasta sem ég hef gert hérna í Danaveldi fram að þessu:) Ég var ekki með myndavélina á föstudeginum og á eftir að fá myndir hjá Mörtu en ég tók þessar á laugardeginum.
H.C. Andersen
Skreyting í glugganum á H.C. Andersen safninu.
Svo maður viti hvert maður eigi að fara.- Við Amanda erum búnar að vera frekar duglegar að fara á kaffihús.
- Hitti Hugborgu á þriðjudaginn og við kíktum í búðir (hef gert voða lítið af því hehe) og á kaffihús.
- Svo kemur familían mín annað kvöld og verður frábært að hitta liðið:) Verðum með bílaleigubíl í 3 daga og ætlum að fara eitthvað skemmtó. Svo förum við saman yfir til Köben áður en kemur að heimferð og ætlum að fara á Rolling Stones svo eitthvað sé nefnt og er spennan að magnast yfir því:)


Við Amanda við ströndina













