Hver sagði að það væri séríslenskt hvað veðrið væri breytilegt, á nokkrum dögum hef ég séð allt nema snjó held ég bara. Í gær var sól og hiti svo kom úrhelli og svo sýndi sólin sig aftur og þannig hélt það áfram.
Það var æðislegt að fá Margréti í heimsókn um helgina:) Við stelpurnar kíktum á nokkra staði hér á laugardagskvöldið og fengum okkur kokteila. Daginn eftir fórum við í Magasin (eina búðin sem var opin) og niður á höfn þar sem hátíð og mér leið eins og það væri kominn 17. júní. Krakkar með kandíflos, sölutjöld, fullt af fólki, hljómsveit og tívolí. Það var mjög skemmtilegt að upplifa danska hátíðarstemmningu.
Um helgina heyrði ég mjög skemmtilega fullyrðingu um mig sem ég hef held ég ekki heyrt síðan ég var lítil en hún hljómar á þessa leið: "Vá Sía hvað þú ert brún, þú ert brúnni en ég." Þetta var Margrét sem hefur ekki séð sólina síðan í vor og ég var náttúrulega í sumarveðrinu heima:) Þetta gladdi mig mjög mikið hehe.
Á mánudaginn kom svo loksins sumarveður og við Amanda borðuðum kjúklingasalat út í garði. Þetta var stutt heimsókn hjá Fröken Sumri og hún hélt eitthvert langt í burtu í gær og leyfði Herra Rigningu að koma í staðinn, skil ekki hvers vegna.
Stór dagur á morgun, elsku besta mamma mín á afmæli og líka Amanda og Kata:)
Við Amanda á laugardagskvöldið
Við Margrét, gott ef ég hef ekki hækkað eitthvað síðan við hittumst síðast:)
Nei greinilega ekki, það er samt ekki svona mikill hæðarmunur, hún stóð á tá:)
Paradis is, ótrúlega góður ís:)
Mega hress hljómsveit sem tók fullt af gömlum góðum smellum og kom fólki í gírinn
Kvöldmatur í garðinum
Amanda með Kötulegan svip:)


6 Ummæli:
Hæ Sía Okkar
Flottar myndir Guðjón tók eftir bjórnum(flott uppeldi)og sagði að stelpur eiga ekki að drekka bjór ha ha ha !
Knús Helga ,Guðjón og Guðmundur
Hæ Sía mín.
Töff myndir mér sínist þið hafa það bara mjög gott þarna úti í rigningunni :) hahaha. Hlakka til að sjá þig eftir 14 daga. hæ hæ Lallý
Hehehe Guðjón á margt eftir ólært í bjórbransanum;)
Hlakka líka til að sjá þig Lallý mín, þá verður sko verslað:)
haha.. já þetta er ekkert smá kötulegur svipur.. gæti bara verið katie kate :)
Þú ert að standa þig í uppfærslunum, ánægð með þig:) Og þið lítið allar alveg ótrúlega vel út! Égvar að klukka þig;)
ydw61k366
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
supreme outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim