Sían

sunnudagur, apríl 09, 2006

Vantar smá spark í rassgatið

Fór á bjórkvöld í Kennó í gær og ég veit ekki alveg hvað hefur komið fyrir alla nemendurna, eru allir orðnir svona samviskusamir að þeir eru að læra alla daga og öll kvöld. Það voru sem sagt mjöööög fáir og þetta er í annað sinn sem ég fer á bjórkvöld þar sem það eru svona fáir. Eins gott að Anna Pála og Þórunn voru með mér:) Þrátt fyrir fámennið var mjög fínt og gott að komast aðeins út. Ég tók ekki með myndavél en það er ein mjög fyndin mynd á skhi.is, kíkið á hana;)

Ég er að reyna að vera rosa dugleg að læra en það gengur ekki rass í bala, vantar smá stress því ég er bara að hanga þó svo ég sé að fara í lokapróf á morgun, gæti ekki verið kærulausari;) Ég reyni bara að vera duglegri á morgun.

Þarf núna að fara að klæða mig fyrir ferminguna sem byrjar klukkan 5, þau hérna heima að ég sé svo lengi, skil það ekki.

Bæjó

5 Ummæli:

Þann 9:52 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ hæ segjum tvær með kæruleysið. Veit ekki hvað þarf að koma upp á til að maður taki sig saman í andlitinu ÚFFFFF :O)

Gangi þér vel :)

 
Þann 10:38 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

hahhaa við vorum flottastar, það er meira en má segja um hina félagasskítana ahahahah, ein voða góð með sig, að mæta í fyrsta sinn á eitthvað í vetur fyrir utan árshátíð. En við stórgræddum nú á þessu það var ekki verra!!! Manni fannst maður ættir reyndar að vera að læra, ég er vön að vera með bækur fyrir framan mig þegar ég er í skólanum á kvöldin og það má heyra saumnál detta.

 
Þann 11:09 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

ohhh þú ert búin að vera so ogisslega dugleg að læra í kvöld elskan mín :)...bið að heilsa úr stóra sófanum...haha!! ;)

 
Þann 11:12 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

við erum ógeðslega duglegar að vera að vinna í þessari helv... ferilmöppu í Náttúrufræði og listum!!! Bið að heilsa úr litla sófanum :)

 
Þann 3:30 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

ioft5439h2as
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
golden goose outlet
supreme outlet
golden goose outlet
golden goose outlet

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim