Sían

sunnudagur, september 10, 2006


Ég stækkaði í dag um nokkra sentimetra því ég keypti mér stígvél. Já Flatbotna Sía keypti sér skó með hælum og ætlar sér að nota þá hversdagslega! Tók Margréti nefnilega til fyrirmyndar og ákvað að reyna að pæja mig upp. Er komin nokkuð langt með það, keypti mér pæjupeysu í búðinni hennar Siggu frænku fyrir vestan, er farin að naglalakka mig, er með tiltölulegar nýja klippingu og strípur (er líka með einn depil í toppnum en ég borgaði ekki fyrir hann), á gullskó sem ég er ótrúlega ánægð með eins og sumir hafa heyrt nokkrum sinnum. Heyrðu já var næstum búin að gleyma flotta bolnum sem ég keypti í dag sem verður notaður á djamminu. Ætli þetta séu kannski merki um að ég er að fullorðnast, spurning... Talandi um það ég sá draumaíbúðina mína á netinu í gær og ég hef varla hætt að hugsa um hana. Á einhver nokkrar millur til að lána mér? Þetta er ótrúlega kósý, lítil risíbúð við Laugardalinn. Vá hvað mig langar að kaupa hana.

6 Ummæli:

Þann 8:33 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

lýst mér á þig kona!!! þá er líka bara um að gera að koma til Madrid og shoppa meira ;)

 
Þann 10:08 f.h. , Blogger Linda sagði...

úlalala Laugardalurinn, væri nú ekki slæmt að fá þig í Dalinn;) Já maður verður að taka Margréti til fyrirmyndar og pæja sig aðeins upp:) Hvar er þessi íbúð annars?

 
Þann 10:47 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hún er á Hofteigi:)

 
Þann 5:50 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Jiii hvað þú ert orðin mikil pæja, ég fer líka kannski að taka ykkur til fyrirmyndar hérna í sveitinni þar sem lopapeysan er nú yfirleitt málið :O)

 
Þann 10:02 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ú...ú! Fullt af flottum búðum hér í Madrid - einnig allt mjög ódýrt :-) Um að gera að skella sér Sigríður Erna!
Kveðja úr sólinni

 
Þann 9:16 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Pæja pæja!!! Annars mæli ég með íbúðinni í Laugardalnum - ég skal vera rosa dugleg að koma í heimsókn... :)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim