Sían

miðvikudagur, september 13, 2006

Bjórkvöld

Það er ekki margt sem hefur komist að heldur en skólinn og verkefni tengd honum, gaman að því. En í kvöld ætla ég á bjórkvöld útskriftarnema þar sem við ætlum að hrista hópinn saman og ræða um útskriftarferðina í maí og fjáraflanir. Ég er komin í þrjár fjáröflunarnefndir, bolasölu, bingókvöld og karnival og verður það án efa skemmtileg leið til að safna peningum fyrir sólarferð;)
Svo má ekki gleyma hinni árlegu Laugarvatnsferð sem verður á föstudaginn. Þrjú bleikubeib og vinir þeirra ætla ekki að missa af þessari frábæru ferð, spurning í hvaða búning við verðum;)
Það verður nóg um að vera um helgina því ég er líka að fara í innflutningspartý hjá bróður mínum og kærustunni hans á Eyrarbakka á laugardaginn, mín verður bara út á landi alla helgina hehe...

Hver man ekki eftir þessari ferð:)

3 Ummæli:

Þann 8:55 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Góða skemmtun á öllu djamminu :-)

 
Þann 10:29 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Takk:)

 
Þann 8:03 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

vúhú það verður nú gaman hjá okkur á morgun.... sé þig þá!

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim