Sumarfrí;)
Hæ hæ
Þá eru prófin búin, kláraði á mánudaginn og skilaði síðan möppum í myndmenntinni í gær, vá hvað það var geggjað. Var orðin svo þreytt í gær að ég fór nánast beint upp í rúm og lagði mig, það var eins og öll þreyta síðustu mánaða hafi komið í einu.
Við stelpurnar á kjörsviðinu fórum saman í baðstofuna í Laugum á mánudaginn eftir próf, það var æði, fórum í gufu, pottana inni og úti og svo fórum við í hvíldarherbergið ekkert smá gott;) Tókum svo einn laugara og borðuðum bragðaref, nammnamm.
Ég er í fríi núna nema á eftir hádegi á þriðjudögum næstu 3 vikurnar:) Svo hafið bara samband ef ykkur langar að gera eitthvað skemmtó.
Á morgun verður hittingur hjá Lindu á Kambó og það verður án efa skemmtilegt enda fyrsta djammið eftir próf. Eurovision og próflokadjamm er svo næstu helgi.
Sjáumst á djamminu;)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim