Sían

föstudagur, maí 26, 2006

Vinna

Jæja stúlkur mínar þá kemur blogg frá mér:)
Ég er búin að vera að vinna svolítið auka þessa vikuna og svo byrja ég á fullu í næstu viku þegar ég fer á fræðslur og fleira skemmtó. Námskeiðin fyrir krakkana byrja svo daginn fyrir afmælið mitt og það vita allir hvenær það er;) Svo verður mín yfirmaður í nokkrar vikur í júní og verð ég þá voða fín með mig í dragt og alles, hehe nei djók bara gamla ég plús meira álag hehe. Í júlí verður frekar tjillað í vinnunni þar sem ég og einn strákur verðum með frístundaklúbb fyrir 10-12 ára krakka og það er allt annað mál en að vera með 6 ára krúsídúllurnar sem geta verið ansi fjörug á tímum;)
Á morgun verð ég í undirkjörstjórn í Ölduselsskóla allan daginn og kvöldið þannig að ég verð hressust annað kvöld en er samt að pæla að gera kannski eitthvað, ég meina þetta er nú einu sinni kosningakvöld:)
Afmælispartýið mitt verður síðan haldið að öllum líkindum 9. júní en ég læt ykkur vita betur af því líklega bara í næstu viku.
Óska síðan Ásdísi Svövu aftur til hamingju með 2. sætið í ungfrú Ísland:)

Þangað til næst, Sían:)

8 Ummæli:

Þann 9:00 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Best að kommenta nú sem fyrst !!! Til að koma í veg fyrir svona pásur á milli, ó nei ekkert hangs neitt Sigríður Erna!!! :)

Við Bjarney höfum verið þvílíkt duglegar í dag og síðasta miðvikudag!
Orðnir algerir mælingameistarar :) 1,7 og 4,2 er okkar mál haha.

Ungfrú Ísland var nú heldur betur spennandi... með þessum líka hmm... 45 mínútna auglýsingahléum ?!?! En þær bestu,flottustu,sætustu (hvað segir maður?) komust á toppin og ég er sátt... hefði verið alveg snar ef .... nei förum ekki út í það! Rosalega er nú fallegt fólk í ættum okkar Sigríður ;) hihi
Jæja þetta komment er nú orðið lengra en bloggið hjá þér!
Hlakka til að hitta þig sem verður nú ekkert eftir svo langan tíma ... hvenær ætlaru að koma og sækja kínaskóna? Ef í hart fer tek ég þá bara með mér í vinnuna... og þá gæti verið að þú fáir brúna kínaskó í stað rauðra :) haha !
Bið að heilsa þér, er á síðustu metrunum í DaVinci Lyklinum og spennan magnast !
bæ!

 
Þann 8:13 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Jæja ég fer að koma til þín og ná í skóna, kem kannski annað kvöld:)

 
Þann 9:51 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

er svona rosalega mikið að gera? eða gerist ekkert merkilagt?

 
Þann 8:07 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er mikið að gera í vinnunni ég fer að láta heyra í mér á síðunni hehe Svo fer ég að láta sjá mig í nýja húsið;)

 
Þann 1:09 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hola senjorita!! ;)...loksinsloksins náum við að komast á netið! það er búið að vera heavy gaman hjá okkur...fórum í fyrsta sinn í skólann í dag í 6 f****** klukkutíma! en það var mjög skemmtilegt...lærðum alveg fullt, vonum að eitthvað haldist inni ;)...erum nýkomnar heim eftir að hafa verið niðrí bæ að horfa á flamenco dans (fylgist með æsispennandi sögu af því á tilvonandi blogginu okkar;) ) erum núna að nördast á netinu og erum á leið í beauty meðferð eins og við köllum það ;)

Chao Bella! ;)
Kv. Arna Ósk og Lára

 
Þann 6:31 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ótrúlega gaman að heyra að þið hafið það gott;) Hlakka mikið til að lesa bloggið ykkar, er strax farin að sakna ykkar:)

 
Þann 4:45 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

HOla sæta ;) ætlaði að fara að senda þér mail...en pósturinn minn vinnur á hraða snigilsins akkúrat núna þannig að ég ákvað að skrifa bara hér :)...við erum komnar með bloggsíðu: blog.central.is/espanolayeh ;)...erum líka búnar að kaupa headset fyrir skype ;)
Kv Arna Presley ;)

 
Þann 8:17 e.h. , Blogger Linda sagði...

Jæja...var ekki eitthvað verið að tala um að fara að blogga þegar skólinn byrjaði???:)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim