Ég er komin í jólafrí!!! skilaði síðasta verkefninu á þessari önn á miðnætti á þriðjudaginn. Er búin að gera ýmislegt síðan þá. Ég fór að kenna á miðvikudagsm0rguninn og brunaði svo niður á Vegamót þar sem ég snæddi yndislegan mat með yndislegu bekkjarsystrum mínum:) Í gær fór ég svo á jólakaffi í Kastala sem er frístundaheimilið sem Guðjón er á, ég var ekkert smá fegin að mamma, pabbi og Hafdís voru með mér því ég átti í fullu fangi með að passa að Guðmundur styngi ekki af hehe:) Guðjón gaf mér síðan æðislegan snjókarl sem hann föndraði í skólanum og er ég búin að hengja hann upp á hurðina mína, yndisleg þessi börn:)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim